Datt í hug að birta færsluna sem ég skrifaði á sama degi í fyrra. Þá kláraðist veturinn greinilega fyrr en núna...
Það er síðasti vetrardagur í dag og það sést sko vel á Austurlandi.
Það snjóar inn um gluggann minn!
Jæja vonandi fer að hlýna á morgun þegar sumarið á að koma. Enn hef ég ekki heyrt um nein hátíðarhöld á Héraði en ég er að velta því fyrir mér að fara í bænagöngu... er samt ekki viss um að ég nenni að vakna kl.8 á frídeginum mínum. En allavega er stefnan tekin á bíltúr með Frikka og grískri stúlku sem fylgir honum. Um kvöldið eru svo tónleikar með Pétri Ben, LAylow og Ólöfu Arnalds, ég hlakka mikið til.
Ég hlakka reyndar mest til að komast heim en engu að síður er mjög notalegt að geta loksins verið á sama stað í viku, það hefur ekki tekist í lengri tíma trúið mér!
En annars er ég með tvö jólalög á heilanum allan daginn alla daga... er það eðlilegt?!?
Sól úti sól inni sól í hjarta sól í sinni sól bara sól
Ég man að ég svaf yfir mig og fór ekki í bænagöngu en ég man að mér var kalt í bíltúrnum og tónleikarnir voru æði!
Ég er mikið að reyna að rifja upp hvaða jólalög þetta voru... það var allavega "Ég hlakka svo til..." en ég get ómögulega munað hvað hitt var.
En bráðum mun ég líta hið fagra Hérað á ný sem ég gat ekki beðið eftir að komast í burtu frá á þessum tíma í fyrra...
Flokkur: Bloggar | 18.4.2007 | 12:44 (breytt 18.4.2008 kl. 10:20) | Facebook
Athugasemdir
Það er afar hressandi að skafa bílinn síðasta vetrardag. Hérna á Akureyri er þó sólin farin að sýna sig og því mestur snjór bráðnaður - sem er vel.
Addaðu mér inná msn kona! krukka@hotmail.com
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 18.4.2007 kl. 14:46
Sorrý Fanney, ég er bara með netið í vinnunni og kemst hvergi á msn! Ég skal adda þér inn um leið og ég kemst á netið í eigin tölvu.
Lutheran Dude, 18.4.2007 kl. 15:24
Hlín - loka glugganum
Þráinn (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 18:23
Ef lífið bara væri svona einfalt Þráinn minn, ég vil frekar láta snjóa inn um gluggann heldur en að hafa ólíft inni á skrifstofunni
Lutheran Dude, 21.4.2007 kl. 18:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.