AAADD

Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega hefur fundist
greining á, en engin lækning við, enn sem komið er.

Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp:

Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá eftir að
bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn
áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en
tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði því reikningana sem höfðu borist,
frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa
reikninga, fyrst ég yrði við bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að ná í
veskið  og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo
ég gleymdi því ekki.

Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í eldhús tók ég eftir því að blómið í
borðstofunni var orðið heldur þurrt. Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva
blómið áður en lengra væri haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með
vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu.
Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi hana
örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á
uppáhaldsþáttinn "Sex in the City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á
handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti. Fór þangað
og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að fyrr um
morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór með gleraugun inn í
svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna þau þegar ég færi í rúmið að lesa
uppáhaldsbókina mína......ef ég finn hana. Stoppaði í svefnherberginu þar sem
dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera!!! 



Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað
blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki svarað e-mailunum
og var auk þess búinn að týna fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið beið
kalt á eldhúsborðinu. 

Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum snúningum.
Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að leita mér hjálpar
við.



Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated Attention Deficit Disorder" á íslensku "Aldurstengdur athyglisbrestur"






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Örn Sveinbjörnsson

Ha ha ha ha ha :) þetta var yndislegt innlegg...ég held að þetta geti verið mjööög algengur sjúkdómur. Nú þarf ég að fara að kryfja þá daga þar sem maður er dauðþreyttur í lok dags án þess að nokkuð hafi gerst.

Davíð Örn Sveinbjörnsson, 8.6.2007 kl. 11:21

2 Smámynd: Heiðdís Ragnarsdóttir

yessss. ég er ekki komin með þetta...ennþá !!! Býst samt fastlega við því að þetta detti inn einhvern daginn

Heiðdís Ragnarsdóttir, 8.6.2007 kl. 13:59

3 identicon

Hlín - þú drekkur ekki kaffi

Annars mjög gott!

Þráinn (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 18:29

4 identicon

hehehe nákvæmlega það sem ég tók eftir og svo gleraugunum ;)

Berglind (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 20:39

5 Smámynd: Lutheran Dude

Þið vitið ekki neitt um þetta, kannski breytist ég bara svona mikið við það að búa á Austurlandi

Lutheran Dude, 13.6.2007 kl. 08:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband