Þá er maður mættur í menninguna og er að svindla með því að blogga í vinnunni... reyndar líður mér eins og ég sé ein hérna þrátt fyrir að klukkan sé bráðum að verða hálf níu! Það voru líka flestir lengi í vinnunni í gær.
Þar sem Þorgeir er farinn er reyndar líklegt að ég verði líka ein af þeim sem verð lengi í vinnunni (þó ég mæti klukkan 8). Ég hef aldrei verið lamin af jafn mikilli þögn og í gærkvöldi, ég setti ipodinn í eyrun bara til að þagga niður í þögninni! Borgarbarn á ekki að vera eitt í 50 manna húsi lengst upp í sveit, bara staðreynd.... en þetta reddast, hlýtur að venjast.... ef ekki þá bara græði ég ipodinn við eyrað (já eða símtólið )
Verð að vinna. Yfir og út með kveðju frá Eg
Athugasemdir
Ég sem var akkúrat að hugsa um að fara að hringja í þig - það er greinilega þörf á því! Góða skemmtun í vinnunni og heyrumst sem fyrst!
Þráinn (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 09:15
Þú verður aðvera dugleg að blogga svo mér leiðist ekki Vonandi verður þögnin ekki of yfirþyrmandi
Þjóðarblómið, 9.1.2007 kl. 21:21
Æ Hlín þú ert svo góð og yndisleg manneskja, ég er svo heppin að þekkja þig. Knús
Guðrún , 10.1.2007 kl. 18:28
Æ Hlín þú ert svo góð og yndisleg manneskja, ég er svo heppin að þekkja þig. Knús
Guðrún , 10.1.2007 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.