Just keep swimming

litmynd_025.jpg

Vitiði ég þoli ekki svona daga... ég er þreytt, mér er kalt, ég er eirðarlaus, ég er svöng en hef enga matarlyst... en ég nenni ekki að væla. Segi bara eins og minnislausi fiskurinn í Finding Nemo: Just keep swimming, just keep swimming...

 En yfir í annað, ég komst að því að ein bekkjarsystir mín er efni í mjög góðan stalker. Hún vildi sjá mig í brúðarkjól og í staðinn fyrir að kíkja í tölvuna mín í skólanum ákvað hún að googla mig... og það tókst. Þess má geta að ég gef hvergi upp fullt nafn hérna en einhvern veginn fann hún mig. Og hún fór þvílíka krókaleið... eitthvað í gegnum KFUM og eitthvað fleira. Hún sagði mér þetta í dag, vildi hrósa mér fyrir hvað ég var flott brúður! Takk ég veit Hlæjandi. Þá var önnur sem sagði, Já, ég verð að finna þessa síðu. Hin hló bara og sagði haha gangi þér vel! Ég segi það líka, gangi henni vel ég skil ekki ennþá hvernig hún fór að þessu... magnað! En af því að ég er svo sæt í kjól ætla ég að leyfa ykkur að njóta aftur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahah algjörlega brilliant mynd ekki spurning! og já Hlín þú ert ekkert smá mikil skvís í kjól! :)

Berglind (IP-tala skráð) 12.10.2006 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband