Ungfrú Austurland!

Ég var kjörin ungfrú Austurland í dag!

Að vísu bara af einhverjum skemmtilegum gaur sem var ásamt hópi karlmanna á fundi með bæjarstjóranum og ungfrúin ég var leidd inn til að taka mynd af hópnum.

Ég er ein á skrifstofunni minni í dag, það er tilbreyting, vanalega erum við að minnsta kosti þrjú! Annars er stemmingin hérna svakaleg þ.e. þá daga sem fólk er í vinnu. Við sitjum nánast ofan á hvert öðru. Um daginn sat Sigga Fanney með fartölvu í fanginu inni hjá Hildi af því að borðið hennar var tekið, ég sé ennþá eftir að hafa ekki fattað að taka mynd af þessu á símann.

En jæja best að halda áfram að vinna, vildi bara deila titlinum mínum með ykkur... ég ætla að bera hann með stolti, spurning um að föndra kórónu handa mér Halo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með þetta. Gaman að fá smá fréttir af þér. Hvernig ertu að fíla það að vera útivinnandi kona?

Vona að þú hafir það gott, bið að heilsa bónadanum

Erna Björk (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 22:16

2 Smámynd: Tinna Rós Steinsdóttir

Haha.....til hamingju með titilinn.....vel að honum komin! :)

Tinna Rós Steinsdóttir, 16.9.2008 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband