Maður finnur ótrúlegasta fólk í bloggheimum þessa dagana ég skal segja þér það. Og ég frétti það bara svona óvart!
Annars fór ég í jólagjafaleiðangur í dag. Þorgeir var búinn að vera inni í Hagkaup í svona 20 mínútur þegar hann var alveg búinn á því og gat ekki beðið eftir að komast heim. Hér með óska ég eftir nýjum jólagjafaleiðangursfélaga... þó ég sé reyndar næstum búin. En hey, mér finnst allt jólaskemmtilegt, þar með jólaösin... nei annars ég tek til baka að allt jóla sé skemmtilegt, ekki jólaumferð og jólafrekja! Já og ekki jólaklipping, ég fór í mína í dag, tók allt of langan tíma og var alltof dýr... en hún er allavega flott. Það er allavega næstum allt jóla skemmtilegt
PS. Kíkið hér til að sjá allt það nýjasta í Luthervörunum... mig langar í annan hvern hlut. Ég held að bindin séu eitthvað fyrir Lutheran dudes og mig langar í svona barnaföt þegar ég eignast barn líka
Bloggar | 14.12.2006 | 21:38 (breytt kl. 21:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Verð bara að deila með ykkur skemmtilegum tölvupósti sem ég fékk í dag. Ég hló endalaust mikið... en kannski er ég bara einföld!
"gæti einhvert ykkar lánað mér diktófón í nokkra daga til að taka upp viðtal við útskriftarblaðið okkar?"
En annars eiga allir og þá meina ég ALLIR að kaupa uppskriftarbók af mér, kostar bara 1500 kr. fullt af glæsilegum uppskriftum, allt fljótlegir réttir og hægt að versla allar vörur í bónus! Mjög stúdentavæn bók! Þið hafið enga afsökun fyrir að kaupa hana ekki
Bloggar | 6.12.2006 | 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
er loksins búið! VÚHÚ!
Og þá eru öll próf vetrarins búið, bara eitt hópverkefni eftir fram að jólum og tímasókn til 15. desember! Endalaust gaman...
Ég verð nú samt að viðurkenna að ef ég væri duglegri að halda mér við efnið hefði ég getað verið löngu búin með þetta heimapróf... já og líka ef ég hefði verið betur undirbúin
En ég verð að deila með ykkur þessum snilldarleik sem ég fann á netinu, metið mitt er 120! Svona er lífið athyglin ekki alltaf á réttum stað...
Bloggar | 29.11.2006 | 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
vildi bara deila því með ykkur að innlegginn virkuðu bara svona svakalega vel, þunn og þægileg
Annað en það er lítið að frétta... ég er í heimapróf fram á fimmtudag... svaka stuð, ég nenni því engan veginn. Varð samt alveg svakalega heilluð af uppbyggingarstefnunni þegar ég var að læra og komst að því að hún mamma mín er bara snillingur í henni. Ég ætlaði að heimta fullt af bókum í útskriftarferð en fæ þær bara lánaðar hjá mömmu í staðinn! Já svei mér þá ef ég er ekki að breytast í nörd, ég er að spá í að lesa fræðibækur í jólafríinu úffídúffí.
Heyrðu jú annars... það er eitthvað að frétta. Ég er að fara að flytja austur á Egilsstaði í fjóra mánuði! Vúhú, sting bara kallinn af og mun búa ein í Kirkjumiðstöð Austurlands sem tekur notabene um það bil 50 manns! yndislegt alveg hreint yndislegt. En austurland er að sjálfsögðu flottasti staður í heimi og ég fæ nú manninn minn í heimsókn auk þess sem ég skrepp einhvern tíma í bæinn.
Já flottasti staður í heimi... allavega á sumrin veit ekki hvernig þetta lítur út á veturna... vonandi vel!
Bloggar | 28.11.2006 | 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fyrst verð ég nú að deila með ykkur merkilegasta póstinum í dag. Jújú ég fékk send innlegg í pósti, 3 stk. eiga að passa í allar nærbuxnategundir. Kannski læt ég ykkur vita hvernig þau virka seinna! Minnir bara á túrtappana sem ég fékk í pósti fyrir mörgun árum, áður en ég var byrjuð á túr... hvar ætli þeir séu niðurkomnir ??
En nú ætla ég ótrúlegt en satt að lýsa yfir óánægju minni opinberlega. Ég er mjög óánægð með eina ákvörðun stjórnar KFUM & KFUK. Nú á sem sagt að fara að skipta um merki og taka upp danska merkið. Ok ég skil hagkvæmnina sem er í gangi af því að þá er hægt að kaupa merktar vörur frá Danmörku og eitthvað í staðinn fyrir að styrkja íslenska framleiðslu (jákvætt eða neikvætt?) En að vísu trúi ég því ekki að það sé svakalega hagkvæmt að fara út í svona róttæka skiptingu og rífa niður merkin af húsinu, búa til ný, hanna ný bréfsefni og prenta þau... það er margt í skiptingunni líka sem kostar pening. En málið er aðallega það að síðan hvenær hefur KFUM & KFUK snúist um peninga og hagkvæmni, þetta mál er miklu meira en eitthvað svoleiðis. Þetta snýst fullt um tilfinningar, ég vil til dæmis ekkert taka upp nýja merkið, það eru fleiri tákn í KFUK merkinu og það er líka miklu flottara, nú þarf ég að safna öllum vörum sem eru til með því merki og nota eins mikið og ég get! Kannski ég steli bara KFUK merkinu af veggnum á Holtaveginum og hengi upp hérna heima, já eða hirði það þegar það á að fara í ruslið
En það sem ég er fyrst og fremst óánægð með er kannski ekki merkjaskiptin sjálf heldur hvernig staðið var að þeim. Þetta er stórt mál, þetta er tilfinningamál og ég skil ekki af hverju félagsfólk var ekki spurt! Það hefði alveg verið hægt að bíða með þetta og greiða atkvæði á aðalfundi... það hefði ekki verið dýrt. Þetta er miklu meira en bara einhver Glitnisumbreyting... þetta er spurning um tilfinningar, ég dauðvorkenni gömlu konunum í AD KFUK sem hafa alist upp með þetta merki á náttborðinu næstum því eða allavega í hjartanu!
Svo eru þessi gömlu góðu merki bara mikið flottara en biðskyldu merkið danska!


Annars megið þið líka endilega segja mér hvað ykkur finnst... hvort sem þið eruð sammála eða ósammála. Á þessu bloggi eru allar skoðanir leyfðar
Kirkjan | 15.11.2006 | 14:11 (breytt kl. 14:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
þá er það komið á hreint, Þorgeir verður fastur í Noregi þangað til á morgun. Ég er búin að reyna að fylgjast með þessu öllu á textavarpinu en komst að því að það er ekkert að marka það. Tímarnir sem voru þar og tímarnir sem Þorgeir fékk uppgefna voru bara ekkert þeir sömu. Merkilegt nok!
Annars á ég að vera að læra, það hefst nýtt námskeið á morgun. Ég á eftir að klára verkefni úr síðasta námskeiði og svo á ég eiginlega líka eftir að byrja að lesa fyrir nýja námskeiðið, stórskemmtilegt alveg hreint.
Ég var í Vatnaskógi frá föstudegi til laugardags, bara ljómandi fínt alveg hreint finnst mér, enda voru svo skemmtilegir unglingar sem fylgdu mér! Mér fannst til dæmis ógeðslega fyndið þegar ein stelpan frá mér laug því að Styrmi að hún héti Daníel og Styrmir fór að tala við mig um stelpulega strákinn í deildinni minni. Mér fannst þetta góður brandari hjá stúlkunni.
Svo taka bara Jól í skókassa við í vikunni. Ég ætla að reyna að hjálpa þeim eins og ég get, mér finnst þetta æðislegt verkefni, vildi bara að ég gæti verið með frá upphafi til enda! Hvet alla til að taka þátt, nánar hér.
Bloggar | 5.11.2006 | 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dagurinn minn byrjaði ekki sérstaklega skemmtilega. Ég vaknaði við símann minn titrandi á náttborðinu og einhvern vegin vissi að þetta var ekki vekjaraklukkan af því að ég var of þreytt til að það væri kominn morgun. Líkamsklukkan hafði rétt fyrir sér... það var einhver að hringja í mig. Símtalið var ca. svona:
Halló
Já halló þetta er lögreglan geturðu sagt mér hver er prófastur á Eggertsgötu?
HA? (Ég tengi prófasta bara við kirkjuna veit ekki enn hvað maðurinn meinti með prófastur á Eggertsgötu)
Geturðu sagt mér hver er prófastur á Eggertsgötu?
HA? Prófastur?!?
Já það er reykskynjari í gangi í einni íbúð hérna
Jájá, númer hvað?
106. Jahá það er mín íbúð
Já þú ert sem sagt ekki heima
Nei (ef ég hefði verið heima hefði ég líklega vaknað við reykskynjarann en ekki símann) Ég kem.
Við erum sem sagt að "passa" tengdasystkini mín ef svo má að orði komast frá því í gær þangað til á morgun og gistum þar af leiðandi ekki heima hjá okkur. En hér er einmitt þjófavarnarkerfi frá Securitas, mér var kennt á það í morgun.
Þorgeir uppgötvaði það aftur á móti þegar hann var búinn í skólanum að hann gaf mér upp vitlaust leyninúmer. Já, það var sérstaklega gaman að uppgötva það eftir mikið væl, eyrnaverk, símtal við Securitas og samtal við nágrannan og hundinn hans!
Niðurstaða: ekki minn dagur... en hertu upp hugann Pétur þú sjónvarpsstjóratetur þetta gengur bara betur næst!
Bloggar | 31.10.2006 | 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Vildi bara deila þessu prófi með ykkur. Endilega takið það og setjið niðurstöðurnar í kommentin
Ég trúi henni 100%, enda segi ég aldrei neitt í hugsunarleysi
Kirkjan | 20.10.2006 | 11:51 (breytt kl. 11:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
kemur skapinu í lag.
Ég fór í sund í gær með Lutheran dudes, þar fékk ég meðal annars beint í æð merkingu orðsins réttlæti allt frá upphafi alda. Þetta var ansi merkilegt, ég náði því sem Jón Ómar var að segja, það er að segja lokapunktinum en ég skildi minna en helminginn!
Svo fór ég í sund aftur núna í kvöld með hluta af Lutheran dudes, sem sagt Þráni. Góð sundferð, ég elska heita potta.
Segið mér samt eitt, hvernig er hægt að vera að drepast í hnénu ef maður hefur ekki notað það í neitt nema labba... og ekki einu sinni neitt sérstaklega mikið í það?
Ég klára áfangann minn á morgun JEIJ, búið að vera aðeins of mikið að gera síðustu viku... það er stuð.
Ég veð úr einu í annað enda bara bráðum tími á að koma sér í bólið... bara eitt í viðbót.
Jón Ómar sagði skemmtilega setningu í dag. "Ég og Stefán Einar vorum að vinna hópverkefni með tveimur öðrum konum..." Þetta er svona eins og þegar aumingja Chandler sagði "If I were a guy and... did I just say if I were a guy?!?"
Bloggar | 19.10.2006 | 23:10 (breytt kl. 23:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja þá er ég búin að eyða öllum deginum fyrir framan tölvuna og var að enda við að senda kennaranum mínum heimaprófið. Svei mér þá ef þetta var ekki bara nokkuð sanngjarnt hjá henni, tíminn passaði allavega akkúrat.
Ég ákvað bara svona að ganni að deila með ykkur þýðingunni á djókinu um daginn. Spurning hvor það var bara fyndnara á ensku eða "útlensku"
Bloggar | 18.10.2006 | 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)